Friday, April 1, 2011

Bjarke Ingels Group - BIG

Dálæti mitt á BIG fer sívaxandi. Nýlega unnu þau samkeppni um vegamót tveggja stórra hraðbrauta við Stokkhólm sem nefnist Stockholmsporten. Hugmyndin er frábær, til að minnka hljóðmengun frá svæðinu gera þeir dal sem umlykur gatnamótin og í dalnum er votlendi,  skógur og hjólastígar. En rúsínan í pylsuendanum er RISA stór spegla kúla sem svífur yfir gatnamótunum og speglar dalinn. Þetta er eitthvað sem gleður augað á föstudagsmorgni :)
 
 
 










Allar myndir fengnar frá www.dezeen.com

Tuesday, March 29, 2011

Fékk jákvæðar fréttir frá Lundi.

Jebb jebb,,þá er komið að því ég var tekin inn í Mastersnám í Sustainable Urban Design við Lundar háskóla, sjá heimasíðuna hér.
Ég er ekkert smá ánægð með þetta. Hérna má líta bækling sem gefinn var út um námið. Spennó, spennó.

Friday, March 25, 2011

Mike Reynolds er hetjan mín.

Þegar að Mike Reynolds fór fyrst að byggja hin svokölluðu Earthships sín í byrjun sjöunda áratugarins þá hristu margir hausinn og fannst hann bara hallærislegur hippakall. Kannski finnst sumum það enn í dag,, en ekki mér. Ég bara skil ekkert í því að það vilji ekki bara hver einasta manneskja í heiminum eignast svona hús.
Earthships eru semsagt hús sem eru fullkomlega sjálfbær eining. Það þýðir að húsið er hvergi tengt við vatn ,hita eða orku annarsstaðar frá. Húsið er meira að segja hannað með það í huga að geta ræktað mat,,eiginlega einsog gróðurhús. Allt vatn er fengið úr regnvatni, orkan er fengin frá sólinni og vindinum og jafnvel húsið sjálft er byggt úr endurnýtanlegum efnum eins og gömlum hjólbörðum, áldósum, flöskum og svo framvegis.
Ég varð fyrir algerri hugljómun þegar ég sá myndina sem gerð var um Mike fyrir um þrem árum síðan. Hún heitir Garbage Warrior og ég skora á alla sem að vettlingi geta valdið að reyna að nálgast hana.
Ég skal byggja mér svona hús í framtíðinni!!!
Mike Reynolds

Flöskubotnar í veggjunum

Hér er sýnt hvernig Jarðskipið vinnur vatn og orku.

Það væri ekki amalegt að búa svona.

Jarðskipin eru út um allan heim - líka á norðlægum slóðum.

Það eru til fjölmargar gerðir Jarðskipa.

Planteikning

Gróðurinn dafnar vel í eldhúsinu.

flott!

Jarðskip í Brighton.
Einnig er gaman að kíkja á heimasíðuna www.earthship.org og fræðast þar betur um Jarðskipin og sjá einnig hvað Mike er að gera í hjálparstarfi.

Monday, March 14, 2011

Túristastaðir í Noregi

Manni langar eiginlega til að fara í ferðalag til Noregs þegar að maður sér þessar myndir. Norðmennirnir eru greinilega ekki að spara neitt við aðbúnað ferðamanna um landið. Eitthvað sem við hér á Íslandi mættum taka til okkar. Ferðaklósettin frá gámafélaginu eru nú ekkert sérlega hugguleg.
Endilega kíkið á síðuna um túristaveginn í Noregi. Síðan sýnir hvíldarstaði eftir Noregi endilöngu.
mynd: www.turistveg.no
mynd: www.turistveg.no
mynd: www.turistveg.no
mynd: www.turistveg.no
mynd: www.turistveg.no
mynd: www.turistveg.no
mynd: www.turistveg.no

The Hill square - Buro sant en co

Torg í Tillburg hannað af Buro Sant en co frá Hollandi. Þríhyrningslaga torg með röndum af grasi og skemmtilegum gosbrunnum sem kæla á sumrin og vökva grasið í leiðinni. Flott hvernig þeir lýsa upp gosbrunnana á kvöldin og að þeir skuli ekki vera í eiginlegri laug heldur koma beint úr rist í stéttinni.
mynd: Buro Sant en Co
mynd: Buro Sant en Co
mynd: Buro Sant en Co
mynd: Buro Sant en Co
mynd: Buro Sant en Co

Monday, March 7, 2011

Kraud

Þær Yvonne Fehling og Jennie Peiz eru hönnunarteymið Kraud. Þær byrjuðu að vinna saman 2006 og eru með stúdíó í Karlsruhe í Þýskalandi.
Um hönnun sína segja þær: „There’s something rather contradictory about the entirely random way we approach or avoid things. We draw on the complementary and construct complementary objects. The seemingly contradictory complement each other. We make something which goes far beyond its actual function.“  
Ég myndi ekki slá hendinni á móti einu svona krúttlegu svíni eða svona bekk.
Mynd : http://www.kraud.de/
Mynd : http://www.kraud.de/
Mynd : http://www.kraud.de/
Mynd : http://www.kraud.de/
Mynd : http://www.kraud.de/
Mynd : http://www.kraud.de/
Mynd : http://www.kraud.de/

Klahn+Singer+Partner

Þýsku landslagsarkitektarnir Klahn+Singer+Partner hafa í gegnum tíðina gert nokkuð skemmtileg verk. Hér er það sem mér finnst áhugaverðast af verkefnalistanum þeirra. (allar myndir eru af heimasíðunni þeirra).

Sunday, March 6, 2011

Súlur


Sagrada famiglia.

Krematorium Berlin.

Krematorium Berlin.

Það er eitthvað heillandi við notkunina á súlum á þessum myndum. Eitthvað sem örugglega er hægt að útfæra í landslagsarkitektúr.