Monday, February 28, 2011

Praia Formosa Promenade - Madeira

mynd: http://www.gap.pt/index.html

mynd: http://www.gap.pt/index.html

mynd: http://www.gap.pt/index.html

mynd: http://www.gap.pt/index.html

mynd: http://www.gap.pt/index.html

mynd: http://www.gap.pt/index.html
Þessar myndir sýna skemmtilega gönguleið meðfram klettaströnd við eyjuna Madeira. Gönguleiðin er hönnuð af Portúgölskum landslagsarkitektum sem heita Global. Leiðin er hönnuð til að valda sem minnstum umhverfisáhrifum og á leiðinni geft tækifæri til að skoða ýmis náttúrufyrirbrigði. Pallarnir eru staðsettir í um 8 m hæð yfir sjávarborðinu og ná hæstu öldurnar því rétt að sleikja botn pallanna.

Friday, February 25, 2011

Innblástur - Alex McLeod

myndir af www.landezine.com 
myndir af www.landezine.com

myndir af www.landezine.com

myndir af www.landezine.com

myndir af www.landezine.com

myndir af www.landezine.com

myndir af www.landezine.com

myndir af www.landezine.com
Alex McLeod er listamaður sem býr og starfar í Toronto. Tölvugert landslag hans sýnir ævintýralegan og heillandi heim. Hann blandar saman tölvuteikningu og ljósmyndum á snilldarlegan hátt og myndirnar hafa dáleiðandi mátt.

Monday, February 21, 2011

Gardens by the bay - Singapore

mynd : www.grant-associates.uk.com

mynd : www.grant-associates.uk.com

mynd : www.grant-associates.uk.com

mynd : www.grant-associates.uk.com
Síðar á þessu ári munu Gardens by the Bay opna í Singapore. Þetta er ekkert smá metnaðarfullt og DÝRT verkefni. Garðurinn mun vera á ströndum borgarinnar og verður í þrem hlutum einn hlutinn er hannaður af Grant associates frá London. Haldin var samkeppni og voru Grant associates þar hlutskarpastir ásamt fyrirtæki Kathryn Gustafsson hjá Gustafson-Porter.

Saturday, February 19, 2011

West 8 - Je t´adore

Það er með ólíkindum hvað West 8 hefur gert margt flott í gegnum tíðina. Það er eitt að gera flottar teikningar en það er annað að koma svona miklu í framkvæmd. En það hefur gengið mjög vel hjá West 8. West 8 eru upprunalega frá Hollandi og hefur stofan starfað í yfir 20 ár. í dag eru þeir með yfir 70 starfsmenn og stafsstöðvar í NewYork, Toronto, Belgíu og í Rotterdam. Stílinn  þeirra er mjög Hollenskur og sviðið sem stofan starfar á er mjög breytt allt frá borgarskipulagi niður í hönnun götugagna svo sem ljósastaura og setbekkja. Á heimasíðunni þeirra er hægt að skoða flest það sem stofan hefur fengist við á síðustu árum.
Borneo Sporenburg í Amsterdam.

Botanic bridge - Gwangju.

Falconplein

Inner garden - Háskólanum í Utrecht.

Miami Beach - Soundscape Park.

Pleingehelen Duinbergen.

Vaartkom & Engelsplein.

World Sustainable Centre.

Friday, February 18, 2011

Campa de los ingleses - Bilbao

Umhverfis Guggenheim safnið í Bilbao sem teiknað er af Frank Gehry hafa verið opnuð fjöldi grænna svæða hönnuð af hinum ýmsu landslagsarkitektum. Þar á meðal er garður eftir Diane Balmori. mjög athyglisverð og skemmtileg hönnun, sérstaklega þykja mér tröppurnar með blómakerinu skemmtilegar.




Tillaga Balmori að garði við Guggenheim sem vann samkeppni um svæðið 2009.

Wednesday, February 16, 2011

Superkilen Kaupmannahöfn

www.superkilen.dk
www.superkilen.dk

www.superkilen.dk
Kaupmannahafnarborg hefur verið mjög dugleg að bæta við og endurgera svæði til almenningsnota og eru þar mörg spennandi verkefni framundan þar sem sköpunargleðin og fjölbreytnin er aðdáunarverð. Hefur verið opnuð vefsíða tileinkuð þessum verkefnum sem vert er að líta á HÉR. Eitt þessarra svæða er Superkilen sem er ílangt torg á Nörrebro þar sem fjölmenningarsamfélaginu er hyllt undir höfði. Svæðið er þrískipt í rautt, svart og grænt. Á rauða svæðið er áherslan lögð á hreyfingu, það svarta er tileinkað hinni anlegu hlið og það græna er ætlað fjölskyldum. Svæðið er ríkulega búið götugögnum allsstaðar að úr heiminum. Af myndunum að dæma virðist þetta svæði líta mjög vel út og það verður spennandi að sjá hversu vel dönunum tekst til, en áætlað er að svæðið opni síðar á þessu ári. Hönnuðir svæðisins eru BIG  og Topotek1 en á heimsíðum þeirra má finna fullt af myndum og mörg fleiri skemmtileg verkefni. Superkilen er einnig með blogg þar sem hægt er að fylgjast með framgangi mála.

Monday, February 14, 2011

Super Sustainable City - Gautaborg

Kjellgren og Kaminsky eru tveir ungir arkitektar frá Svíþjóð. Hafa þeir hannað nýtt vistvænt hverfi í Gautaborg. Hverfið nefnist Super Sustainable City og er byggt yfir ána sem liggur í gegnum borgina og skapa þarmeð tengingu á milli borgarhluta. Verkefnið er unnið með það að markmiði að Gautaborg verði sjálfbær 2050. Hinn nýji borgarhluti mun vera laus við bílaumferð og einkennast af grænum svæðum, þakgörðum og sólarpanelum. Spennandi verkefni með góð markmið.




Sunday, February 13, 2011

Högna

Bakkaflöt í Garðabæ - ljósmyndari Guja Dögg Hauksdóttir.




Ljósmyndari - Kristján Magnússon.

Högna Sigurðardóttir er fædd 1929 og er fyrsta íslenska konan til að starfa sem arkitekt. Hún hefur starfað að mestu  í Frakklandi en á þó finnast eftir hana nokkur glæsileg hús á Íslandi. Ég hef alltaf haft dálæti á verkum hennar. Henni tekst einstaklega vel að tengja saman hús sín og garðinn og skapa þannig heildstæða mynd. Íbúðarhús sem hún teiknaði við Bakkaflötina í Garðabæ er frábært dæmi um hvernig hægt er að nýta landslagið í hönnun bygginga. Húsið var valið eitt af 100 merkustu byggingum 20 aldarinnar í Evrópu. Íslensk náttúra og veðurfar hefur verið hennar aðalinnblástur í gengnum tíðina og hefur Högna alveg einstakan stíl.
(myndir frá Hönnunarmiðstöð Íslands )

Saturday, February 12, 2011

High Line park - New York

Svona litu teinarnir út fyrir breytingar.






Það var árið 2003 sem ég fyrst heyrði af hugmyndum um þetta nýja græna svæði á Manhattan. Þá höfðu staðið deilur um þessa gömlu lestarteina sem lágu frá Chelsea niður í Meat packing district. Verktakar vildu ólmir fá að rífa teinana en Listamenn og Arkitektar voru á öðru máli. Það voru stofnuð samtök um verndun teinanna og þessi samtök héldu síðan samkeppni um hvað gera átti á þessum sögufræga og niðurnídda stað. Teinarnir höfðu ekki verið í notkun í áratugi og hafði villigróður tekið sér bólfestu á þeim. Yfir 700 tillögur bárust og margar þeirra voru mjög framúrstefnulegar. Til dæmis lagði einhver til að gerð væri lengsta sundbraut í heimi, þarna yrði kúabú, rússibani og allt þar fram eftir götunum. Að lokum varð það svo að James Corner og Dillier Scofidio + Renfro leiddu hönnunarteymi garðsins. 2006 hófust síðan framkvæmdir við fyrsta hlutann og opnaði sá hluti 2009. Opna á annan hluta garðsins í ár. Algjört möst ef maður kíkir til NY,, eða svo segir mér hún Guðrún Dóra vinkona sem var þarna um daginn :) Garðurinn er með frábæra heimasíðu þar sem hægt er að fræðast meira  The High Line.