Saturday, February 12, 2011

High Line park - New York

Svona litu teinarnir út fyrir breytingar.






Það var árið 2003 sem ég fyrst heyrði af hugmyndum um þetta nýja græna svæði á Manhattan. Þá höfðu staðið deilur um þessa gömlu lestarteina sem lágu frá Chelsea niður í Meat packing district. Verktakar vildu ólmir fá að rífa teinana en Listamenn og Arkitektar voru á öðru máli. Það voru stofnuð samtök um verndun teinanna og þessi samtök héldu síðan samkeppni um hvað gera átti á þessum sögufræga og niðurnídda stað. Teinarnir höfðu ekki verið í notkun í áratugi og hafði villigróður tekið sér bólfestu á þeim. Yfir 700 tillögur bárust og margar þeirra voru mjög framúrstefnulegar. Til dæmis lagði einhver til að gerð væri lengsta sundbraut í heimi, þarna yrði kúabú, rússibani og allt þar fram eftir götunum. Að lokum varð það svo að James Corner og Dillier Scofidio + Renfro leiddu hönnunarteymi garðsins. 2006 hófust síðan framkvæmdir við fyrsta hlutann og opnaði sá hluti 2009. Opna á annan hluta garðsins í ár. Algjört möst ef maður kíkir til NY,, eða svo segir mér hún Guðrún Dóra vinkona sem var þarna um daginn :) Garðurinn er með frábæra heimasíðu þar sem hægt er að fræðast meira  The High Line.

2 comments:

  1. Tek undir með ykkur Guðrúnu Dóru, náða að spóka mig þarna um í byrjun árs. Svæðið að vísu í vetrarbúningi en engu frábær hönnun og skemmtilegt að lyfta sér uppúr götuumhverfinu á "aðra" hæð og njóta þessa grænu vinar.

    Flott blogg hjá þér - verður gaman að fylgjast með í framtíðinni :o)

    kv. Hrafnkell

    ReplyDelete
  2. Já ég hlakka mikið til að skoða þetta svæði í eigin persónu í sumar :)

    Takk fyrir hrósið !

    Edda

    ReplyDelete