 |
| Bakkaflöt í Garðabæ - ljósmyndari Guja Dögg Hauksdóttir. |
Ljósmyndari - Kristján Magnússon.
Högna Sigurðardóttir er fædd 1929 og er fyrsta íslenska konan til að starfa sem arkitekt. Hún hefur starfað að mestu í Frakklandi en á þó finnast eftir hana nokkur glæsileg hús á Íslandi. Ég hef alltaf haft dálæti á verkum hennar. Henni tekst einstaklega vel að tengja saman hús sín og garðinn og skapa þannig heildstæða mynd. Íbúðarhús sem hún teiknaði við Bakkaflötina í Garðabæ er frábært dæmi um hvernig hægt er að nýta landslagið í hönnun bygginga. Húsið var valið eitt af 100 merkustu byggingum 20 aldarinnar í Evrópu. Íslensk náttúra og veðurfar hefur verið hennar aðalinnblástur í gengnum tíðina og hefur Högna alveg einstakan stíl.
(myndir frá
Hönnunarmiðstöð Íslands )
þú ættir að athuga betur með myndefnið þitt og hvaðan þú tekur myndir. Þessar eru teknar úr fréttatilkynningu sem send var á nokkra staði vegna sýningar sem ég setti upp á Kjarvalsstöðum.
ReplyDeleteÞað er hvorki löglegt sé siðlegt að hirða myndir upp án þess að fá leyfi til þess eða að geta ljósmyndara með hverri mynd.
Fyrsta myndin er tekin af mér, arkitekt Guju Dögg Hauksdóttir og hinar myndirnar eru teknar af ljósmyndaranum Kristjáni Magnússyni.
Að öllu jöfnu átt þú að fá leyfi og borga fyrir myndbirtingar.
Ég get gefið þér leyfi fyrir minni mynd gegn því (lögformlega) skilyrði að þú biðjir um leyfið og setjir nafn höfundar við hana, en leyfi fyrir hinum myndunum þarft þú að fá hjá ljósmyndasafni Þjóðminjasafns Íslands. Ég hvet þig til að gera það.
p.s. ég sé þegar ég skoða heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar frá hlekknum (sem þú átt þó hrós skilið fyrir að setja inn) er heldur ekki getið þessara upplýsinga þar - sem þeir ættu að vita manna best! Þetta er svo mikil og almenn vanvirðing á vinnu hönnuða og listamanna - ég vona að athugasemdir mínar beri þann árangur að aðrir átti sig á samhenginu og geri betur.
ReplyDeletebestu kveðjur.