Hér er nýstárlegur leikvöllur hannaður af Johan Ferner Ström. Völlurinn er allur bylgjóttur og því eru allir leikmenn jafngóðir/lélegir. Jafnvel ég gæti spilað fótbolta á þessum velli. Þetta er ábyggilega rosalega gaman. Leikvöllurinn er í Malmö í Svíþjóð og hann var tilnefndur til Making space verðlauna 2010 sem skemmtilegt útileiksvæði fyrir börn. Algjör snilld. Hér er líka video gert af Nicholas Wakeham um Puckelball völlinn.
Mjög skemmtilegt.

No comments:
Post a Comment