Þegar að Mike Reynolds fór fyrst að byggja hin svokölluðu Earthships sín í byrjun sjöunda áratugarins þá hristu margir hausinn og fannst hann bara hallærislegur hippakall. Kannski finnst sumum það enn í dag,, en ekki mér. Ég bara skil ekkert í því að það vilji ekki bara hver einasta manneskja í heiminum eignast svona hús.
Earthships eru semsagt hús sem eru fullkomlega sjálfbær eining. Það þýðir að húsið er hvergi tengt við vatn ,hita eða orku annarsstaðar frá. Húsið er meira að segja hannað með það í huga að geta ræktað mat,,eiginlega einsog gróðurhús. Allt vatn er fengið úr regnvatni, orkan er fengin frá sólinni og vindinum og jafnvel húsið sjálft er byggt úr endurnýtanlegum efnum eins og gömlum hjólbörðum, áldósum, flöskum og svo framvegis.
Ég varð fyrir algerri hugljómun þegar ég sá myndina sem gerð var um Mike fyrir um þrem árum síðan. Hún heitir Garbage Warrior og ég skora á alla sem að vettlingi geta valdið að reyna að nálgast hana.
Ég skal byggja mér svona hús í framtíðinni!!!
 |
| Mike Reynolds |
 |
| Flöskubotnar í veggjunum |
 |
| Hér er sýnt hvernig Jarðskipið vinnur vatn og orku. |
 |
| Það væri ekki amalegt að búa svona. |
 |
| Jarðskipin eru út um allan heim - líka á norðlægum slóðum. |
 |
| Það eru til fjölmargar gerðir Jarðskipa. |
 |
| Planteikning |
 |
| Gróðurinn dafnar vel í eldhúsinu. |
 |
| flott! |
 |
| Jarðskip í Brighton. |
Einnig er gaman að kíkja á heimasíðuna
www.earthship.org og fræðast þar betur um Jarðskipin og sjá einnig hvað Mike er að gera í hjálparstarfi.
No comments:
Post a Comment