Dálæti mitt á
BIG fer sívaxandi. Nýlega unnu þau samkeppni um vegamót tveggja stórra hraðbrauta við Stokkhólm sem nefnist Stockholmsporten. Hugmyndin er frábær, til að minnka hljóðmengun frá svæðinu gera þeir dal sem umlykur gatnamótin og í dalnum er votlendi, skógur og hjólastígar. En rúsínan í pylsuendanum er RISA stór spegla kúla sem svífur yfir gatnamótunum og speglar dalinn. Þetta er eitthvað sem gleður augað á föstudagsmorgni :)
Allar myndir fengnar frá
www.dezeen.com